Atburðarteljari

Auglýsing

Atburðarteljari

Klukkan

My slide show

Textareitur

Könnun

Hvaða dýr er í uppáhaldi hjá þér?

góður tími í sumarfríinu

07. ágúst 2011 klukkan 22:26
hæhæ ég veit það er komið smá tími síðan ég skrifaði hér inná síðast :) 
Ég var í heimsókn heima hjá mér á Skagaströnd ákvað að taka mér smá sumarfrí og fara þangað...líður alltaf lang best þar í litla staðnum hehe....kisurnar tóku náttúrulega mjög vel á móti mér hann elsku Grettir minn og Mollý mín sváfu upp í rúmi hjá mér til skiptist og bæði saman líka voða góð við mig heheh og hann svaf einnig ofan á sænginni minni á mallanum mínum hehe besti köttur ever...elska þau öll svo mikið.....
þetta var óskup notalegt að vera þarna ein bara með mömmu, hitta ömmu, systur mömmu og bróður hennar..allt eins og á að vera hehe...
Ég bæði grillaði og eldaði djúpsteiktann fisk með lauk og öllu dótarínu sem því fylgir ekkert smá gott heheh og í bæði skiptin buðum við ömmu í mat þetta var því mjög góður tími þarna heima, var að prufa að hekla í gær svona prufu langar svo til að læra að hekla en það tekur tíma og æfingu hehe....hægt að gera svo margt fallegt bæði dúka, föt og annað. Bara var ekki nægur tími til að eitthvað meira en prufa úr hekli yrði til í þetta skipti :) Annars var ég bara að prjóna ungbarna sokk þar sem ég var búin með þann fyrri þá auðvitað vantaði þann seinni hehe en hann er hálfnaður verð ekki lengi með restina þegar ég kemst í það :D
Hins vegar vonast ég til að fara að fá fartölvuna mína til mín í næstu viku, vegna viðgerðar sem er búið að taka síðan í byrjun júní, er það nú þjónusta hjá EJS ömurleg....láta mann bíða endalaust eftir því að kíkja til þess að segja mér að þurfi að panta nýjann skjá sem ég gat nú sagt mér sjálf og þeim.... en það er loksins búið að panta hann og ætti ég að fá þetta afhent í næstu viku, ekki er nú hægt að fara í nám án fartölvu nú á dögum :) 
Fór í heimsókn til Hrefnu frænku og tók myndir úr garðinum hennar svaka flott allt hjá þeim hjónum :) hitti einnig afa minn, pabba pabba míns :) nóg að gera, náðum einnig í bróður minn þangað sem hann á heima og til baka aftur og við vorum þá ég mamma mín og bróðir minn 3 heima í kotinu óskup notalegt bara hehe...auk 3 katta :) 
En jæja nú sit ég hér með einn somersby apple cider, hélt þetta væri eitthvað svaka gott hef smakkað þetta áður en einhvern vegin er þetta ekki alveg sama bragð núna þegar maður situr hér og smakkar þetta hér ein hehe já ég drekk ekkert að viti en finnst stundum gaman að smakka eitthvað nýtt en bara lítið af því þannig ég get varla sagt að ég drekki áfengi..
En jæja nú er ég orðin mjög þreytt haha og búin að skrifa held ég nóg í bili, ég er allavega komin suður aftur eftir góðan tíma heima og það er bara búið að vera blíða hér síðan ég kom kl 18 í dag alveg geggjað veður rosa gott :) en ég skrifa meira seinna....kv Rebekka.
Rebekka Maren Þórarinsdóttir
Engin athugasemd

26 júlí 2011

26. júlí 2011 klukkan 14:55
í dag er litli prins í heimsókn og við vorum að koma heim allt gengur mjög vel og hann svaka góður og rólegur hjá mér :)

Annars er frekar leiðinlegt veður úti núna, rigning og vindur bara....get ekki kallað það skemmtilegt veður ...ætlaði að fara í göngutúr með litla kút en það er ekki í boði nema að verða rennandi blautur....

Annars var alveg frábært að hafa Öldu vinkonu mína hér hjá mér í gær, við skemmtum okkur konunglega vel saman og brölluðum ýmislegt hehe...alltaf gaman að brjóta upp daginn og gera eitthvað óvanalegt saman....

En já meira er það svo sem ekki , blogga meira seinna...bæjó
Rebekka Maren Þórarinsdóttir
Engin athugasemd

búið að vera nóg að gera og ég tók mér smá sumarfrí.

19. júlí 2011 klukkan 18:02
Góðan og blessaðan daginn...ég veit að klukkan er að verða 18 og telst það kannski undir kvöldið hehe....en hvað um það....

Ég er í smá sumarfríi hér heima á ströndinni og líkar það bara mjög vel,...ég er búin að baða eina kisuna og er hún svo rosalega hvít og fín núna með góðri lykt, hann Grettir minn vældi mikið fyrir utan baðherbergið á meðan þessu stóð og hafði miklar áhyggjur af vinkonu sinni sem var verið að baða......en þetta gekk vel og hún er búin að koma og þakka mér fyrir að nenna að gera sig svona fína...

Ég gerði svo bílinn minn í gær rosalega fínann, nógu langt síðan ég hef nennt að þvo hann svona hrikalega vel....hvor sem á við um að innan eða utan...þvoði hann fyrst, setti svo sápu og svo tjöruhreinsi og svo þvoði ég hann allan aftur að utan,...ryksugaði að innan og pússaði allt sem var hægt að pússa.....já sem sagt aldrei þessu vant er bíllinn minn hreinn og fínn ætla að splæsa í einhverri góðri ilmlykt til að setja í bílinn ;)

Ég hef verið að passa lítinn krúttlegann 3 ára strák svona nokkra daga og það hefur gengið mjög vel...hann er bara sáttur að vera hjá mér og er enginn grátur þótt að mamman og pabbinn hafa verið farin í vinnuna þegar hann hefur vaknað og bara séð mig hehe...sem betur fer....en þetta er ágætt bara....

Ætla svo að kíkja á vinkonu mína á Akureyri smá á morgunn fara til hennar í klámið eins og við köllum það, þar sem hún vinnur í Adam og Evu hehe....flott búð með fleiru en klámdóti hehehe....sumir halda það sem ekki hafa komið þar inn að þetta sé eingöngu dónadót haha sem er ekki fullt af fallegum fatnaði og sloppum, rúmfötum, og fleiru bara...en auðvitað aðallega til að krydda upp á ástarlífið....

En svo er leiðinni heitið aftur til RVK þar sem mér er boðið í afmæli um helgina og hlakka ég mikið til að halda upp á þetta með vinkonum mínum...20 ár er merkisafmæli....og um að gera að minnast þess vel og taka margar myndir....

en já meira var það svo sem ekki í bili, blogga meira seinna. kv Rebekka.
Rebekka Maren Þórarinsdóttir
1 athugasemd

Kostningar í dag.

28. nóvember 2010 klukkan 00:09

Hæ hæ allir, nú er ég tæknilega búin í skólanum, nú er bara lestur í gangi alveg á fullu, hefði reyndar mátt vera duglegri í dag, en ég verð það bara á morgunn í staðinn hehe. Ég hef það fínt og þrauka þetta út eins og ég get. Hlakka alveg ótrúlega að fara heim til Akureyrar og hitta alla og kisurnar mínar.

Ég fór og kaus í dag upp í Ingunnarskóla og þetta var soldið furðulegt að kjósa bara eftir númerum hehe en vonandi að það komi eitthvað gott út úr þessum kosningum. Því landinu okkar veitir alveg þvílíkt að því að fá góðar breytingar sem stuðla að góðum og betri lausnum.

Annars er bara allt gott að frétta, ég gríp í prjónana inn á milli lærdómsins og reyni að hitta einhverja svo maður drepist nú ekki algjörlega úr leiðindum hér í hinni stóru Reykjavík :p en þetta hefur bara verið fínt að búa hér samt getur verið soldið erfitt þegar maður fer að hugsa um fólkið sitt heima fyrir norðan en það heldur manni gangandi allur þeirra stuðningur gerir þetta auðveldara fyrir mann. En jamm hef svo sem ekki frá meiru að segja nema ég fer í mitt fyrsta lokapróf hjá Háskóla Íslands 2 desember þannig að þetta fer allt að gerast...en ég leyfi ykkur að fylgjast með. En þangað til næst, bless í bili. 

Rebekka Maren Þórarinsdóttir
Engin athugasemd

Góður tími og ég er orðin 22 ára.

27. september 2010 klukkan 14:39
komið þið blessuð og sæl.


Ég var á Akureyri frá 23-27 september og er því komin aftur til Reykjavíkur.
Fór þangað þar sem ég átti afmæli þann 24 september og er nú víst orðin 22 ára gömul :)


Þetta var rosalega gaman, hitti þar Ragnheiði, Katrínu og Maríu vinkonur mínar. Fyrir náttúrulega utan mömmu,pabba og kisurnar mínar sem voru jafn háðar mér og ég þeim hehehe. Veit ekki hvor átti erfiðara ég að þurfa að fara frá þeim eða þær að ég færi frá þeim.....en þetta er bara svona.

Finnst alltaf jafn gott að koma til þeirra allra þótt það sé ekki langur tími sem maður er fyrir norðan en betra er sjaldan en aldrei að mínu mati hehehe. Næst held ég að það verði bara fyrir jólin sem ég fer til þeirra...þannig að ef ekkert breytist þá er það slatti langur tími. En ég reyni að lifa það af með bestu getu....

Núna í október fara nefnilega að byrja hópaverkefni og er mikill lestur þangað til líka, þannig að það verður enginn tími held ég til að láta manni leiðast, maður neiðist þá í mesta lagi að halda áfram að lesa allt efnið og vonandi að maður nái að lesa allt fyrir lokaprófin, þar sem þetta eru allavega 10 bækur sem ég er að lesa í.

En jæja ég þarf víst að fara að byrja að læra þar sem ég tók mér gott frí um helgina þannig að bless í bili og ég reyni að verða duglegri í blogginu svo að facebookið mitt verði ekki alltaf endalaust fullt af lærdóms upplýsingum hehehe.
Rebekka Maren Þórarinsdóttir
Engin athugasemd

Góð kántrý helgi að baki.

15. ágúst 2010 klukkan 19:01
hæ hæ nú eru kántrýdagar búnir 2010 og voru þeir alveg mergjað skemmtilegir.

Ég skemmti mér mjög vel, Hrefna frænka mín og maðurinn hennar hann Árni voru hjá okkur í heimsókn. Svo kom önnur frænka mín og hennar maður líka þannig að það var víst nóg af fólki hjá okkur á ströndinni um helgina.

Laugardagur.
Var dregin upp á svið til að aðstoða töframann hahahah það var bara fyndið sko. Í tjaldinu voru fullt af tónlistar atriðum mörg flott og skemmtileg og önnur meira fyrir eldra fólkið að mínu mati allavega enda fínt allir að fá eitthvað við sitt hæfi.

Grilluðum saman fjölskyldan en það var maður sem kom allt í einu inn og endaði á að troða sér inn í fjölskylduboðið :( alveg grautleiðinlegur. En svo var hann Andri frændi minn sem birtist allt í einu og gott mál  bara...þá var fólkið sem að hann kom til að heimskækja eða sonn þeirra allavega, þau voru að borða sjálf og hann var ekki boðinn í mat til þeirra þannig að við buðum honum bara að borða hjá okkur :) þannig að frændi fór ekki soltinn.
Hér voru 15 manns í allt í mat og var borðað í 2 hollum hehe allt heppnaðist mjög vel og maturinn var æði, sitt hvort lambalærið bara eldað á mismunandi hátt og svo koníakslegnar grísakótilettur OMG hvað þær voru góðar líka, fékk mér svona smá til að fylla upp í mallann hehehe.

Sunnudagur.
Í dag fór ég svo í gospel messu og vá hvað það var flottur söngurinn, elska þessa gerð af söng svo fallegt. Einu messurnar sem ég nenni í messu :S en ég er víst ekki trúaðasta manneskjan en trúi á minn hátt bara en bara Gospelið heillar mig svo mikið og hefur gert bara síðan ég var í sirka 7 bekk held ég bara.

En núna eru allir farnir :( en þetta var æðisleg helgi, hef bara ekki skemmt mér svona vel lengi miðað við kántrýdaga. Endaði svo sunnudaginn á að panta mér pizzu úr Kántrýbæ, þær klikka ekki ;)

Fer svo suður í næstu viku. ætla að gera tilraun og sauma kjól á vinkonu mína....en maður veit ekki hvort eitthvað takist nema að prufa og vonandi tekst það heheheh þetta er bara spennandi.... finnst svo gaman að sauma nefnilega.

En jæja þannig hefur nú þessi helgi verið hjá mér.....bara takk fyrir þið sem voruð í heimsókn hjá mér, þetta var mjög gaman.
Kveð að sinni.....
Rebekka bloggari.
Rebekka Maren Þórarinsdóttir
Engin athugasemd

:)

15. júlí 2010 klukkan 08:47
jæja allt gengur vel hér í Reykjavíkinni. Er komin með gardínurnar upp þannig að það sést ekkert inn til mín lengur en svo er náttúrulega hægt að draga eitthvað af þeim frá ef maður vill birtu inn :)

Ég fór heim á afmæli pabba 7 júlí og hann var mjög ánægður með það, af því að ég lét líka engann vita að ég væri að fara til Ak hehe :P Átti þar góðan tíma og langaði eiginlega ekkert aftur suður en það varð víst að fara til baka.
Kisurnar mínar voru allavega ánægðar að sjá mig soldið ruglaðar samt á þessu að þetta væri ég hehehe en svo kom Dimma til litla elskan.

Mér leiðist að hafa engin dýr hjá mér en það er bannað :( en ég ætla að vinna hart að því eftir áramót að finna mér íbúð sem má hafa kisur er að deyja, skal geta það. En það er víst nægur tími að finna næstu íbúð :) engan áhyggjur fyrr en á næsta ári.

En bless í bili. Þarf að fara, hef víst nóg að gera.
Rebekka Maren Þórarinsdóttir
1 athugasemd

Rólegur dagur númer 2 í borginni.

27. júní 2010 klukkan 18:32
jæja þá er ég flutt til Reykjavíkur, flutti í gær. Haldið að það sé nú :)

Náði að koma öllu fyrir á sinn stað í gær eftir að allt dótið var komið upp og pabbi minn farinn til baka aftur.

Ég lagði í þá áhættu heheheh að keyra ein í korputorg núna seinni partinn, vissi bara í hvaða átt ég þurfti að fara og ekkert meir en svo kom 1 skilti sem stóð nafnið á en ekkert meir þannig að ég varð bara að giska restina en það gekk bara mjög vel, verslaði það sem ég ætlaði og kom mér svo heim á leið. Dröslaði svo dótinu í báðum höndum og er svo komin heim og er að prjóna til að róa mig aðeins niður eftir þetta búðar puð.

Þetta er bara hin fínasta íbúð og ég er mjög ánægð með hana og staðsetning er smá út fyrir Reykjavík þótt þetta sé partur af borginni hehe sem sagt Grafarholt, Klausturstígur. Hlýlegt og rólegt umhverfi sem er fínt fyrir mig. Engin bíla hljóð eða þannig.

En já, ég eignaðist litla frænku í dag og hlakka mjög til að sjá hana og hverjum hún mun líkjast :) En jæja, ég ætla að skrifa meira seinna, hafið það gott. kv Rebekka.
Rebekka Maren Þórarinsdóttir
Engin athugasemd

gott veður.

07. júní 2010 klukkan 18:02
er komin með íbúð ætla að fara núna á miðvikudaginn að skoða hana og sjá hvort að mér líki við þetta allt saman, hins vegar er ég náttúrulega ekki búin að skrifa undir neinn samning ennþá en þetta kemur allt í ljós.

Hér er mjög fínt að vera rólegt og notalegt. Ég, fuglarnir, Dimma kisa og Mollý kisa höfum það fínt. Þau gömlu hafa það held ég ágætt já já , það er verið að duddast í garðinum.
Rebekka Maren Þórarinsdóttir
Engin athugasemd

Gúdd dag gott fólk :)

17. maí 2010 klukkan 13:51
Góðan og blessaðan daginn. Nú er bara fallegt veður úti mætti samt alveg vera aðeins hlýrra úti.

Ég talaði við eina konu sem sendi mér myndir af íbúð sem er í RVK og ég vona svo innilega að ég fái hana, er á góðum stað og svo virkar konan bara svo yndæl eitthvað. Hún býr á efri hæð í sama húsi ef ég man rétt.
Nú er bara að biðja fyrir og vona að ég fái þessa íbúð :) hlakka svo til og að koma öllu dótinu er það skemmtilegasta og ljúka því líka heheheh.

Þá get ég farið að gera ýmsa hluti sem maður hefur ekki nennt hér á Akureyrinni. Hitt einnig góða vini og svona sem búa í bænum. Það mun margt breytast þegar skólinn byrjar OMG það verður vonandi skemmtilegt. Er ekki enn að trúa því að ég hafi sótt um í HÍ....en aðal vesenið er að finna sér íbúð og það fer vonandi að koma að því. En jæja bless í bili.
Rebekka Maren Þórarinsdóttir
Engin athugasemd